Frestun á greiðslu staðgreiðslu og tryggingagjalds
Eindagi staðgreiðslu og tryggingagjalds sem frestað var á árinu 2020 er að renna upp. Heimilt er að sækja um aukinn greiðslufrest.
Á árinu 2020 var greiðslu á helmingi af staðgreiðslu launamanna og tryggingagjalds með gjalddaga 1. mars frestað til 1. apríl s.á. Jafnframt var heimilað að launagreiðendur gætu óskað eftir fresti á greiðslu þriggja gjalddaga frá 1. apríl til og með 1. desember 2020.
Aukinn greiðslufrestur
Gjalddagi/eindagi
þeirra greiðslna sem frestað var á árinu 2020 er 15. janúar 2021 en heimilt er
að óska eftir enn frekari frestun á greiðslum og dreifingu fjárhæðarinnar á
mánuðina júní, júlí og ágúst 2021. Þá var í lok ársins 2020 heimilað að fresta
greiðslu á tveimur gjalddögum á árinu 2021, þ.e. gjalddögum staðgreiðslu
launamanna og tryggingagjalds á tímabilinu 1. janúar til og með 1. desember.
Uppfylla þarf tiltekin skilyrði fyrir frestun á þessum greiðslum og sækja um í gegnum þjónustusíðu launagreiðanda á skattur.is. Nánari upplýsingar eru á COVID-upplýsingasíðum Skattsins.