Frestur til að skila ársreikningi
Frestur til að skila ársreikningi til
ársreikningaskrár vegna reikningsársins 2016 rennur út 31. ágúst næstkomandi.
Öll skilaskyld félög, óháð því hvort þau teljast hafa verið í starfsemi eða ekki, munu verða sektuð um 600.000 kr. vegna vanskila á ársreikningi 2016 hafi ársreikningi ekki verið skilað til ársreikningaskrár þegar framlengdur framtalsfrestur rennur út þann 20. september 2017.