Fréttir og tilkynningar


Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja tekur gildi 1. janúar 2020

16.12.2019

Með ályktun alþingis frá 13. maí 2019 var ríkisstjórninni veitt heimild til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss) annars vegar og Filippseyja hins vegar.

Samningurinn var undirritaður þann 28. apríl 2016 í Bern í Sviss og hefur nú verið fullgiltur af öll samningsaðilum, en samningurinn tók gildi þann 1. júní 2018 milli Filippseyja, Noregs, Liechtenstein og Sviss. Samningurinn tekur gildi gagnvart Íslandi 1. janúar 2020.

Samningurinn inniheldur, auk ákvæða um viðskipti með fisk og aðra iðnaðarvöru, viðskipti með unnar- og óunnar landbúnaðarvörur, ákvæði um þjónustuviðskipti, fjárfestingar, hugverkaréttindi, opinber innkaup, samkeppnismál, viðskipti og sjálfbæra þróun, samvinnu, stofnanaákvæði og ákvæði um lausn deilumála.

Samningurinn kveður á um lækkun eða niðurfellingu tolla á iðnaðarvörur, sjávarafurðir og ákveðnar óunnar- og unnar landbúnaðarvörur.

Í samningnum er gert ráð fyrir notkun upprunayfirlýsingar til sönnunar uppruna vöru, sjá texta hennar í 13. grein upprunareglna samningsins, sem finna má í Annex I. Ekki verður notast við EUR.1 skírteini.

Samninginn við Filippseyjar og ítarlegar upplýsingar um hann er að finna hér.

Á vef EFTA má nálgast samninginn í heild ásamt viðaukum hans. Athugið að vefurinn er á ensku.

Ný tegund tolls - tollskýrslugerðarhugbúnaður og nýir tollskrárlyklar vegna innfluttra vara

Vegna fríverslunarsamningsins öðlaðist ný tegund tolls fyrir Filippseyjar gildi þann 1. janúar 2020. Lykill fyrir tegund tollsins er YR.

Landalykill fyrir Filippseyjar er PH.

Tollskýrslugerðarhugbúnaður: Stofna þarf nýja tegund tolls, YR kóda fyrir Filippseyjar, í töflu tegunda tolla og landakódi á YR tolli skal vera: PH.

Útfylling aðflutningsskýrslu/útflutningsskýrslu
Þegar óskað er eftir fríðindameðferð við innflutning samkvæmt nefndum samningi skal færa lykilinn YR fremst í reit 33 við gerð aðflutningsskýrslu (E-1) eða vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu. Í reit 8 og 34 skal tilgreina landalykil viðkomandi ríkis, PH fyrir Filippseyjar. Í reit 14 skal tilgreina textann "EUR YFIRLÝS" ef upprunayfirlýsing er á vörureikningi.

Ný útgáfa af tollskrárlyklum vegna innflutnings, þar sem YR tegund tolls hefur verið skráð á öll viðkomandi tollskrárnúmer vegna innflutnings, verður aðgengileg á vefsíðu tollskrárlykla á vef Tollstjóra þegar nær dregur áramótum.

Þegar óskað er eftir fríðindameðferð við útflutning samkvæmt nefndum samningi skal færa lykilinn EX í reit 1 (markaðssvæði) við gerð útflutningsskýrslu (E2) eða vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu. Í reit 17, ákvörðunarland, skal tilgreina landalykil viðkomandi ríkis. Ákvörðunarland er endastöð vöruflutninganna. Í reit 34a, upprunaland, skal skrá IS, ef íslensk upprunavara, en landalykil Filippseyja (PH) ef þarlend upprunavara, áður flutt beinum flutningi til Íslands, er að fara aftur til Filippseyja. Færa skal í reit 44 orðið: YFIRLÝSING ef upprunayfirlýsing er gefin á vörureikningi.

Að öðru leyti vísast til bæklinga um tollskýrslugerð vegna innflutnings og útflutnings.

Nánari upplýsingar

Í VEF-tollskránni á vef Tollstjóra er unnt að sjá hvort YR tegund tolls, tollfríðindameðferð skv. fríverslunarsamningnum, er valkostur á tollskrárnúmeri.



Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum