Fyrsti gjalddagi kílómetragjalds á öll ökutæki - greiðsluseðlar birtir í heimabönkum

30.1.2026

Greiðsluseðill vegna kílómetragjalds ökutækja mun berast eigendum og umráðamönnum í heimabanka föstudaginn 30. janúar. Reikningurinn verður jafnframt aðgengilegur í pósthólfi þeirra á Mínum síðum á Ísland.is sunnudaginn 1. febrúar.

mynd af greiðsluseðli með rauðu letri yfir þar sem stendur sýnishorn

Einn reikningur vegna kílómetragjalds verður sendur á kennitölu gjaldskylds eiganda/umráðamanns fyrir öll ökutæki sem skráð eru á viðkomandi. Allt að 200 ökutæki geta verið á sama reikningi.

Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjalds, sem lagt er á öll gjaldskyld ökutæki frá áramótum,  er 1. febrúar.  Greitt er fyrir akstur í janúar samkvæmt meðalakstri sem reiknaður er út frá skráðri kílómetrastöðu á akstursmæli ökutækis.

Enn tími til að skrá

Hægt er að skoða skráningarsögu kílómetrastöðu ökutækisins á Mínum síðum á Ísland.is.

Hafi einstaklingar ekki skráð stöðu kílómetragjalds er enn tími til að ganga frá skráningu. Ef staðan hefur ekki verið skráð 1. apríl leggst á vanskráningargjald. Gjaldið er þó fellt niður ef mætt er með ökutækið í aflestur á skoðunarstöð innan 30 daga.

Leiðréttingar

Aðeins ein skráning kílómetrastöðu liggur fyrir

Ef aðeins ein skráning á kílómetrastöðu liggur fyrir er greitt eftir áætlun ríkisskattstjóra. Áætlunin er gerð upp og endurgreitt eða mismunur innheimtur eftir að önnur skráning kílómetrastöðu hefur borist.

Nánari upplýsingar áætlaðan meðalakstur

Fyrsti reikningur óeðlilega hár

Ef raunakstur er almennt minni en á því tímabilinu milli skráninga kílómetrastöðunnar er hægt að skrá kílómetrastöðu aftur eftir 30 daga frá síðustu skráningu og fá álagningu á það gjaldtímabil sem liðið. Of há bráðabirgðagreiðsla er þá gerð upp og ef bráðabirgðagreiðsla er hærri er mismunur endurgreiddur.

Bráðabirgaðgreiðsla byggir á rangri skráningu

Leiðrétta má ranga skráningu kílómetrastöðu með því að fara með ökutæki á skoðunarstöð í sérstakan álestur.

Bílar með mílumæla

Í umferð geta verið ökutæki sem aðeins sýna akstur í mílum en ekki kílómetrum.

Eigendur og umráðamenn slíkra ökutækja þurfa að:

  • Skrá stöðu ekinna mílna, eins og hún birtist í mælaborðinu, í reitinn Kílómetrastaða á Mínum síðum

Skatturinn mun umreikna mílur í kílómetra við útreikning kílómetragjalds.

Álagning kílómetragjalds á öll gjaldskyld ökutæki gildir frá 1. janúar 2026. Þó staða kílómetramælis hafi verið skráð á árinu 2025 er hún aðeins notuð til að áætla meðalakstur sem er notaður við útreikning á gjaldinu frá og með 1. janúar 2026.

Nánari upplýsingar um kílómetragjald


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum