Fréttir og tilkynningar


Gjaldfrjáls aðgangur að ársreikningum ársreikningaskrár

5.1.2021

Þann 1. janúar sl. var opinbert vefsvæði stofnað sem veitir almenningi rafrænan aðgang að ársreikningum úr ársreikningaskrá. 

Rafræn uppfletting einstakra ársreikninga á hinu nýja vefsvæði er án gjaldtöku en ársreikningaskrá er heimilt að innheimta gjald fyrir afhendingu ársreikninga á pappír eða öðru sértæku formi.

Til að nálgast ársreikninga félaga er þeim  flett upp í fyrirtækjaskrá, farið í „gögn úr ársreikningaskrá“ og þeir ársreikningar sem á að sækja settir í innkaupakörfu. Þá birtist innkaupakarfa efst á síðunni sem þarf að smella á til að klára niðurhalið á ársreikningunum.

Leit í fyrirtækjaskrá


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum