Hald lagt á ólögleg lyf og steratengd efni í alþjóðlegri aðgerð
Tollgæslan, Lyfjastofnun og Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra voru meðal þátttakenda í alþjóðlegri aðgerð INTERPOL sem beindist að ólöglegum lyfjum sem keypt eru á netinu.
Alls tóku 89 ríki þátt í aðgerðinni sem bar nafnið Pangea XVI og stóð yfir 3-10 október.
Töluverður fjöldi smærri mála kom upp hér á landi í tengslum aðgerðina. Á meðal þess sem lagt var hald á hér á landi voru steratengd og róandi efni sem keypt voru á netinu og bárust til landsins með póst- og hraðsendingum.
Á heimsvísu var meira en 1,300 ólöglegum sölusíðum lokað og lagt hald á lyf að andvirði rúmlega 7 milljón dollara auk þess sem 72 handtökur áttu sér stað. Jafnframt hófust 325 nýjar rannsóknir í kjölfarið á aðgerðinni.
Nánar má lesa um aðgerðina í fréttatilkynningu INTERPOL vegna Pangea XVI: Taking down the transnational crime groups threatening consumer safety
Tollgæslustjóri veitir ekki frekari upplýsingar um málið.