Fréttir og tilkynningar


Haldlögðu 120 leysibenda

5.3.2014

Tollverðir stöðvuðu nýverið sendingu sem innihélt 120 leysibenda sem voru að styrk umfram það sem leyfilegt er. Sendingin kom frá Tælandi samkvæmt pöntun héðan.

Notkun leysibenda sem eru umfram 1 mW að styrk er háð leyfi Geislavarna ríkisins. Þar sem umræddir leysibendar voru umfram leyfileg mörk höfnuðu Geislavarnir umsókn um innflutning þeirra. Innflytjandi fór þá fram á að þeim yrði fargað, sem hefur nú verið gert.

Tollstjóri minnir á að notkun ólöglegra leysibenda getur verið hættuleg eins og dæmi sanna. Upp hafa komið atvik, þar sem fólk hefur orðið fyrir skaða af völdum þeirra. Jafnframt tilvik þar sem hætta hefur skapast þegar leysibendum hefur verið beint að farartækjum ss. bílum og flugvélum.. Geislavarnir ríkisins ráðleggja fólki að horfa ekki í blett sem öflugur leysibendir myndar, en endurvarpið sjálft getur valdið augnskaða. Þá bendir Tollstjóri á að óheimilt er að nota öfluga leysibenda án leyfis frá Geislavörnum ríkisins, auk þess sem tilkynna ber Geislavörnum um innflutning þeirra.

Sjá einnig http://www.gr.is/2013/12/03/um-markadseftirlit-med-leysibendum/

Leysibendarnir voru merktir með "Danger.":


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum