Fréttir og tilkynningar


Innleiðingaráætlun nýrrar innflutningsskýrslu enn breytt

26.10.2018

Undirbúningur og kerfisbreytingar er tengjast því að taka í notkun nýja tollskýrslu hafa tekið mun lengri tíma en áætlað var.

Miðað er við að hugbúnaðarhús ljúki prófunum á móti sínum kerfum fyrir lok ársins 2018.

Stefnt er að því að taka hina nýju skýrslu upp í áföngum út árið 2019.

Áætlun gengur út á að samið verði við miðlara og stærri innflytjendur um tímasetningar innan ársins um að hefja notkun nýju skýrslunnar. Í lok ársins verður ekki hægt að senda inn skýrslur á núverandi formi.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum