Fréttir og tilkynningar


Kærufresti vegna álagningar einstaklinga lýkur 2. september

13.8.2019

Fresti einstaklinga til að kæra niðurstöður álagningar 2019, vegna tekjuársins 2018, lýkur þann 2. september 2019.

Álagning einstaklinga fór fram 31. maí sl. Var niðurstaða álagningar birt á þjónustuvef RSK og er kærufrestur, eins og fyrr segir, til 2. september 2019.

Tekið er á móti kærum með rafrænum hætti á þjónustuvef RSK. Eftir innskráningu með veflykli eða rafrænum skilríkjum skal velja „senda leiðréttingu“. Fylla þarf út formið þar sem gefið er upp framtalsár og tilefni leiðréttingar. Leiðréttingarbeiðni þarf að vera rökstudd og glöggt fram sett. Gögn, leiðréttingarbeiðni til stuðnings, má einnig senda í gegnum þjónustuvef með því að velja „viðbótargögn“.

Þeir einstaklingar sem enn eiga eftir að skila skattframtali 2019 geta enn gert það á þjónustuvef RSK með rafrænum skilríkjum eða veflykli. Berist framtalið fyrir lok kærufrests verður það tekið fyrir sem kæra.

Allar frekari upplýsingar veitir þjónustuver ríkisskattstjóra í síma 442 1000 eða netspjalli.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum