Kílómetragjald – fyrirkomulag og leiðréttingar
Nú hafa fjölmargir landsmenn fengið í fyrsta sinn greiðsluseðil um kílómetragjald og margir að velta fyrir sér hvernig fyrirkomulag gjaldsins sé.
Fyrirkomulagið er þannig að eigandi eða umráðamaður skráir kílómetrastöðu á sínu ökutæki. Síðustu tvær skráningar kílómetrastöðu hjá núverandi eiganda/umráðamanni eru notaðar til að reikna út meðalakstur á dag.
Fjárhæð gjaldins fer eftir meðalakstri á dag og fjölda daga í mánuði.
Nánari upplýsingar um gjald og fyrirkomulag kílómetragjalds
Leiðréttingar
Hér að neðan eru gagnlegar upplýsingar til skýringar á aðstæðum sem geta komið upp.
Ein skráning
Ef aðeins er til ein skráning á kílómetrastöðu hjá núverandi eiganda er greitt eftir áætlun ríkisskattstjóra. Við næstu skráningu kílómetrastöðu er bráðabirgðagreiðslan leiðrétt með tilliti til raunaksturs. Ef akstur var meiri en áætlaður akstur er mismunurinn innheimtur, ef akstur var minni myndast inneign.
Ef reikningurinn þinn fyrir janúar var kr. 8.618 byggir álagning kílómetragjalds sennilega á áætlun ríkisskattstjóra. Þá þarf ekkert að gera nema að skrá aftur. Síðari skráningin kallar fram uppgjör á liðnum tímabilum.
Hægt er að skoða skráningarsögu kílómetrastöðu ökutækisins á Mínum síðum Ísland.is.
Fyrsti reikningur óeðlilega hár
Ef raunakstur er almennt lægri en á tímabilinu milli þeirra skráninga sem notað var til útreiknings meðalaksturs er hægt að skrá kílómetrastöðu aftur. 30 dagar þurfa að líða frá síðustu skráningu. Við seinni skráninguna er liðið tímabil gert upp og hafi bráðabirgðagreiðsla verið of há myndast inneign fyrir mismun.
Bráðabirgðagreiðsla byggir á rangri skráningu
Ef röng kílómetrastaða var skráð í kerfið má skrá nýja stöðu samdægurs og þá gildir sú síðari.
Ef ekki næst að leiðrétta innan dagsins þarf að fara með ökutæki í aflestur á skoðunarstöð.
Sendu okkur línu ef þú ert með fyrirspurn
Ef þú hefur spurningar eða telur að álagning kílómetragjalds hjá þér sé röng eða byggð á röngum forsendum má senda okkur fyrirspurn á netfangið km@skatturinn.is og við skoðum málið.
