Lokað föstudaginn 25. september
Lokað verður hjá okkur á morgun föstudaginn 25. september vegna starfsmannafundar. Urmul gagnlegra upplýsinga er að finna hér á vefnum og ýmsar sjálfsafgreiðslulausnir í boði. Spjallmennið okkar stendur vaktina og getur svarað allskyns spurningum.
Á Siglufirði þurfum við einnig að hafa lokað á fimmtudag, 24. september.
Opnum aftur á mánudag
Starfsstöðvar Skattsins opna aftur með hefðbundnum hætti mánudaginn 28. september klukkan 09:00.
Við munum svara þeim fyrirspurnum sem okkur berast á meðan á lokun stendur eins fljótt og auðið er, en minnum á spjallmennið okkar sem kann svör við ýmsum spurningum sem snúa að starfsemi okkar.
Greiðsla skatta og gjalda
Skatta og gjöld má greiða inn á eftirfarandi reikning:
| Banki | Hb. | Reikn.nr. | Kennitala |
| 0101 | 26 | 85002 | 540269-6029 |
Skuldastaða við ríkissjóð
Skuldastöðu einstaklinga og lögaðila, hreyfingaryfirlit og skuldleysisvottorð er að finna á Mínum síðum á Ísland.is.
Tollafgreiðsla
Rafræn tollafgreiðsla er opin en gera má ráð fyrir einhverjum töfum. Útibú tollgæslu á höfuðborgarsvæðinu, Keflavíkurflugvelli og landsbyggðinni verða opin eftir því sem við á.
