Fréttir og tilkynningar


Lokafrestur til að skila ársreikningi rennur út 31. ágúst 2022

25.8.2022

Frestur til að skila ársreikningi vegna rekstrarársins 2021 til Ársreikningaskrár rennur út þann 31. ágúst nk. Skila ber ársreikningi innan mánaðar eftir að reikningurinn var samþykktur á aðalfundi félags, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.

Sérstök athygli er vakin á því að skili félag ársreikningi síðar en mánuði eftir aðalfund verður félagið sektað.

Á vefnum skatturinn.is/fyrirtaekjaskra má sjá hvort að ársreikningi hafi verið skilað. 

Örfélög geta nýtt sér hnappinn og látið Skattinn útbúa ársreikning félagsins að því tilskyldu að þau hafi skilað skattframtali. Sé hnappsreikningi skilað er heimilt að miða við framlengdan framtalsfrest (30. september nk.).
Ekki er heimilt að staðfesta hefðbundin ársreikning á aðalfundi félags en senda svo inn hnappsreikning í stað þess reiknings sem staðfestur var á aðalfundi. 

Senda skal inn til opinberrar birtingar þann ársreikning sem staðfestur var á aðalfundi viðkomandi félags. Ekki er heimilt að breyta eða fella niður neinar upplýsingar í þeim ársreikningi sem sendur er inn til opinberrar birtingar. 

Sekt vegna vanskila nemur 600.000 kr.

Nánari upplýsingar um ársreikningaskil


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum