Fréttir og tilkynningar


Lokafrestur til að skila ársreikningi er til 31. ágúst 2021

4.8.2021

Ársreikningi vegna rekstrarársins 2020, sem samþykktur hefur verið á aðalfundi, ber að skila inn eigi síðar en 31. ágúst nk.

Forráðamenn félaga sem ekki hafa nú þegar skilað ársreikningi eru hvattir til að bregðast skjótt við og senda ársreikning rafrænt. 

Aðalfundur og innsending ársreiknings

Frestur til að halda aðalfund og skila ársreikningi rennur út átta mánuðum eftir lok reikningsárs. Senda skal inn til opinberrar birtingar þann ársreikning sem staðfestur var á aðalfundi félagsins. Óheimilt er að breyta eða fella niður neinar upplýsingar í þeim ársreikningi sem sendur er inn til opinberrar birtingar.

Hnappurinn

Örfélög geta nýtt sér Hnappinn að því tilskyldu að þau hafi skilað skattframtali. Ef félag nýtir sér Hnappinn þá er ársreikningi skilað með aðstoð Skattsins. Ekki er heimilt að staðfesta hefðbundinn ársreikning á aðalfundi félags en senda svo inn hnappsreikning í stað þess reiknings sem staðfestur var á aðalfundi.

Hægt er að ganga úr skugga um að ársreikningi hafi verið skilað á vefnum skatturinn.is.

Álagning sekta

Sekt vegna vanskila er 600.000 kr. og leggst á eftir 31. ágúst.

Nánari upplýsingar um Ársreikningaskrá og skil á ársreikningum


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum