Mikið magn ólöglegra lyfja haldlagt hér á landi í alþjóðlegri aðgerð

4.2.2025

Tollgæslan var meðal þátttakenda í alþjóðlegri aðgerð Europol sem beindist að viðskiptum og innflutningi á ólöglegum lyfjum og naut liðsinnis Lyfjastofnunar.

Alls tóku 30 ríki þátt í aðgerðinni sem bar nafnið Operation SHIELD V og stóð yfir frá apríl til nóvember 2024. Á heimsvísu var hald lagt á lyf að andvirði rúmlega 11 milljónir evra, 418 einstaklingar voru ákærðir og 52 skipulagðir glæpahringir rannsakaðir.

Hér á landi var lagt hald á 34 þúsund töflur af fíknilyfjum, 43 þúsund töflur og 1700 lyfjaglös af vefaukandi sterum.

Áætlað götuverðmæti þeirra lyfja sem haldlögð voru hér á landi er tæplega 250 milljónir.

Tollgæslan og Lyfjastofnun nutu liðsinnis embættis ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol við aðgerðina.

Lesa nánar um aðgerðina í fréttatilkynningu Europol vegna SHIELD V

Í tengslum við aðgerðina birti Europol myndband þar sem varað er við kaupum á fölsuðum lyfjum.
Horfa á myndband

Ný skýrsla Europol: The threat of pharmaceutical crime in the EU and beyond | Europol

Tollgæslustjóri og Lyfjastofnun veita ekki frekari upplýsingar um málið.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum