Mikið magn ólöglegra peptíða haldlögð hér á landi í alþjóðlegri aðgerð

2.3.2026

Tollgæslan var meðal þátttakenda í alþjóðlegri aðgerð Europol sem beindist að viðskiptum og innflutningi á ólöglegum lyfjum og naut liðsinnis Lyfjastofnunar.

Alls tóku 30 ríki þátt í aðgerðinni sem bar nafnið Operation SHIELD VI og stóð yfir frá apríl til nóvember 2025. Á heimsvísu var hald lagt á lyf að andvirði rúmlega 33 milljónir evra, 3354 einstaklingar voru ákærðir og 43 skipulagðir glæpahópar rannsakaðir.

Hér á landi hefur verið lagt hald á rúmlega 5 þúsund glös af ólöglegum peptíðum sem tengjast m.a. þyngdarstjórnun, húð, hár og vöðvauppbyggingu. Í öllum tilfellum komu peptíðin frá Kína og voru send hingað til lands með póst- og hraðsendingum. Er þetta í fyrsta sinn sem tollgæslan hér á landi leggur hald á slík peptíð.

Seljendur eru með aðsetur í Kína og bjóða að jafnaði 40–50 mismunandi tegundir peptíða til sölu. Alls hafa 34 mismunandi tegundir verið haldlagðar á Íslandi, þar af margar sem aðeins hafa verið prófaðar á mönnum í takmörkuðum mæli og langtímaáhrif þeirra eru óþekkt.

Jafnframt var á síðasta ári lagt hald á tæplega 11 þúsund töflur og 3 lítra af svokölluðum SARMs efnum sem ætluð eru til vöðvauppbyggingar.

Tollgæslan og Lyfjastofnun nutu liðsinnis embættis ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol við aðgerðina.

Tollgæslan mun áfram leggja áherslu á að sporna gegn innflutningi ólöglegra lyfja og annarra skaðlegra efna til landsins í nánu samstarfi við innlendar og erlendar stofnanir.

Lesa nánar um aðgerðina í fréttatilkynningu Europol vegna SHIELD VI.

Sjá umfjöllun á RUV varðandi hættuna á ólöglegum peptíðum.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum