Mikill fjöldi beiðna um endurgreiðslu virðisaukaskatts
Meðal ráðstafana til að bregðast við efnahagssamdrætti af völdum kórónuveirunnar er að endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts var hækkað tímabundið úr 60% í 100% og úrræðið útvíkkað.
Mikill fjöldi beiðna um endurgreiðslu
virðisaukaskatts hefur borist Skattinum undanfarnar vikur og hefur
afgreiðslutími af þeim sökum farið umfram þá 30 daga sem ríkisskattstjóri hefur
til að afgreiða þær. Beðist er velvirðingar á þessum töfum en unnið er að því
að afgreiðslutími verði að hámarki 30 dagar.