Möguleg skipti á búi 176 félaga á grundvelli laga um ársreikninga
Ársreikningaskrá sendi í dag tilkynningu til 176 félaga þar sem þeim var veittur fjögurra vikna frestur til að skila inn ársreikningi eða eftir atvikum samstæðureikningi samkvæmt lögum um ársreikninga.
Ef félag skilar ekki fullnægjandi ársreikningi eða eftir atvikum
samstæðureikningi innan frestsins mun ársreikningaskrá senda héraðsdómi kröfu
um skipti á búi viðkomandi félags. Engir frekari frestir verða veittir af hálfu
ársreikningaskrár.
Minnisblað um framkvæmd ársreikningaskrár við gerð kröfu um skipti félaga