Niðurfelling álags í virðisaukaskatti
Í ljósi erfiðs rekstrarumhverfis og óvissu í atvinnulífi hefur ríkisskattstjóri ákveðið að nýta heimild til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt.
Ákvörðunin er vegna september, október og
nóvember 2020 og nær til eftirfarandi uppgjörstímabila, skilamáta og
gjalddaga:
Gjalddagi | Uppgjörstímabil | Skilamáti |
5. nóvember 2020 | September 2020 | Almenn mánaðarskil |
16. nóvember 2020 | Október 2020 | Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju |
7. desember 2020 | September – október 2020 | Almenn tveggja mánaða skil |
7. desember 2020 | Október 2020 | Almenn mánaðarskil |
15. desember 2020 | Nóvember 2020 | Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju |
Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í
allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga
leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.