Niðurfelling álags í virðisaukaskatti
Í ljósi erfiðs rekstrarumhverfis og óvissu í atvinnulífi hefur ríkisskattstjóri ákveðið að nýta heimild til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt.
Ákvörðunin er vegna nóvember og desember 2020,
ársskila fyrir árið 2020 og sex mánaða skil fyrir júlí-desember 2020 og nær til
eftirfarandi uppgjörstímabila, skilamáta og gjalddaga:
Gjalddagi |
Uppgjörstímabil |
Skilamáti |
5. janúar 2021 | Nóvember 2020 | Almenn mánaðarskil |
15. janúar 2021 | Desember 2020 | Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju |
5. febrúar 2021 | Nóvember-desember 2020 | Almenn tveggja mánaða skil |
5. febrúar 2021 | Desember 2020 | Almenn mánaðarskil |
5. febrúar 2021 | Janúar-desember 2020 | Ársskil |
1. mars 2021 | Júlí-desember 2020 | Sex mánaða skil í landbúnaði |
Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í
allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga
leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.