Niðurfelling álags í virðisaukaskatti vegna maí og júní 2020
Í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkt hefur í atvinnulífi og efnahag landsins hefur Skatturinn, að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið, ákveðið að nýta heimild sína til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt sem er á eftirtöldum gjalddögum:
Gjalddagi | Uppgjörstímabil | Skilamáti |
---|---|---|
6. júlí 2020 | Maí 2020 | Almenn mánaðarskil |
15. júlí 2020 | Júní 2020 | Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju |
5. ágúst 2020 | Maí-júní 2020 | Almenn tveggja mánaða skil |
5. ágúst 2020 | Júní 2020 | Almenn mánaðarskil |
Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.