Fréttir og tilkynningar


Niðurfelling álags í virðisaukaskatti vegna mars og apríl 2020

4.6.2020

Í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkt hefur í atvinnulífi og efnahag landsins hefur Skatturinn, að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið, ákveðið að nýta heimild sína til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt sem er á eftirtöldum gjalddögum:

Gjalddagi  UppgjörstímabilSkilamáti
5. maí 2020Mars 2020Almenn mánaðarskil
15. maí 2020Apríl 2020Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju
5. júní 2020Mars - apríl 2020Almenn tveggja mánaða skil.

Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum