Niðurfelling álags í virðisaukaskatti
Þar sem enn ríkir óvissa í atvinnulífi og efnahag landsins hefur enn á ný verið ákveðið að nýta heimild til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt.
Ákvörðunin er vegna júlí og ágúst 2020 og landbúnaðarskila á gjalddaga 1. september 2020 og nær til eftirfarandi uppgjörstímabila, skilamáta og gjalddaga:
| Gjalddagi | Uppgjörstímabil | Skilamáti |
| 1. september 2020 | Janúar-júní 2020 | Landbúnaðarskil, sex mánaða uppgjörstímabil |
| 7. september 2020 | Júlí 2020 | Almenn mánaðarskil |
| 15. september 2020 | Ágúst 2020 | Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju |
| 5. október 2020 | Júlí-ágúst 2020 | Almenn tveggja mánaða skil |
| 5. október 2020 | Ágúst 2020 | Almenn mánaðarskil |
| 15. október 2020 | September 2020 | Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju |
Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.
