Niðurstaða efnagreiningar á ólöglegum peptíðum.
Í tengslum við stórfelldan innflutning ólöglegra peptíða hingað til lands, hefur tollgæslan sent til greiningar tugi sýnishorna sem haldlögð hafa verið í póst- og hraðsendingum.
Með milligöngu Europol var greiningin framkvæmd á rannsóknastofu á vegum Evrópusambandsins. Framkvæmd úrtaksins var með þeim hætti að tekið var eitt sýnishorn úr sendingu, frá mörgum mismunandi seljendum í Kína.
Við efnagreiningu reyndist ómögulegt að staðfesta að stór hluti sýnishornanna innihéldi þau virku lyfjaefni sem þau voru sögð innihalda. Jafnframt kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum en slíkt er algengt þegar framleiðslan á sér stað við slæm skilyrði.
Notkun á slíkum lyfjum getur haft í för með sér margvísleg heilsufarsleg vandamál, sérstaklega þegar um er að ræða efni sem sprautað er inn fyrir fyrstu varnir líkamans.

