Fréttir og tilkynningar


Lækkun vaxtabóta 2015

30.7.2014

Að gefnu tilefni vill ríkisskattstjóri benda á að bráðabirgðaákvæði um hærri vaxtabætur féll úr gildi um síðustu áramót.

Af því leiðir að samkvæmt gildandi lögum verður hámark vaxtabóta, sem koma til útborgunar 2015, um helmingi lægra en á þessu ári.

Flestir þeir sem eru í fyrirframgreiðslukerfi vaxtabóta fá talsvert lægri ársfjórðungsgreiðslu 1. ágúst en þeir hafa fengið undanfarin ár, enda verða þá greiddar bætur vegna vaxtagjalda á fyrsta ársfjórðungi 2014, eftir að áðurnefnt bráðabirgðaákvæði féll úr gildi.

Nánar: Tímabundið ákvæði

Bráðabirgðaákvæði XLI við lög um tekjuskatt var sett af Alþingi í lok árs 2010 og framlengt 2012 og 2013, til að mæta breytingum sem urðu í kjölfar efnahagshrunsins, með tímabundinni hækkun vaxtabóta. Það gilti fyrir ákvörðun vaxtabóta 2011, 2012, 2013 og 2014 (vegna tekjuáranna 2010, 2011, 2012 og 2013). Hámark vaxtagjalda og vaxtabóta var hækkað og reglum um skerðingu vegna tekna og eigna breytt.

Þar sem bráðabirgðaákvæðið er nú fallið úr gildi fer ákvörðun vaxtabóta 2015, vegna tekjuársins 2014, eftir B-lið 68. gr. tekjuskattslaga. Eðli máls samkvæmt nær það einnig til fyrirframgreiðslu vaxtabóta sem koma til útborgunar 1. ágúst 2014.



Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum