Framlengdur frestur
Ríkisskattstjóri hefur framlengt frest þeirra sem atvinnu hafa af framtalsgerð, til skila á skattframtölum lögaðila.
Fresturinn lengist um 10 daga. Lokaskiladagur verður 20. september. Skattframtölum og ársreikningum skal skila rafrænt.