Breytingar á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald.
Þann 1. október sl. tóku gildi ákvæði 1. og 3. gr. laga nr. 63/2010, um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald.
Í fyrsta lagi er samkvæmt 1. gr. nýjum málsliði bætt við 2. mgr. 4. gr. laga nr. 87/2004 og er um að ræða takmarkanir á sölu litaðrar olíu í sjálfsafgreiðsludælum. Ákvæðið er svohljóðandi.
Gjaldskyldum aðilum skv. 1. mgr. 3. gr. er óheimilt að selja litaða olíu í sjálfsafgreiðsludælum nema slík viðskipti eigi sér stað með sérstöku viðskiptakorti gjaldskylds aðila.Þá eru sektarfjárhæðir í 5. mgr. 19. gr. laga nr. 87/2004, sbr. 3. gr. breytingalaganna, hækkaðar um 50% en í ákvæðinu er kveðið á um sektir vegna notkunar á litaðri olíu á skráningarskyld ökutæki. Eftir breytingarnar verða sektirnar eftirfarandi:
Heildarþyngd ökutækis: | Fjárhæð sektar: |
0-3.500 kg. | 300.000 kr. |
3.501-10.000 kg. | 750.000 kr. |
10.001-15.000 kg. | 1.125.000 kr. |
15.001-20.000 kg. | 1.500.000 kr. |
20.001 kg. og þyngri | 1.875.000 kr. |