Nú er hægt að greiða kröfur vegna greiðsluáætlana í heimabanka
Gjaldendum sem hafa gert greiðsluáætlun um greiðslu skatta sinna býðst nú að greiða kröfur skv. greiðsluáætlun með því að greiða kröfu í heimabanka.
Krafan er sett í heimabanka með skýringuna Greiðsluáætlun og kröfuhafi er tilgreindur sem Ríkissjóðsinnheimtur. Vakin er athygli á því að af tæknilegum ástæðum er greiðsludagur greiðsluáætlunar nefndur gjalddagi í heimabanka, en það haggar þó ekki lögboðnum gjalddaga kröfunnar eða álagningu dráttarvaxta.
Kröfur samkvæmt greiðsluáætlun eru færðar í heimabanka með reglubundnum hætti. Ef þær eru ekki greiddar innan 30 daga frá settum greiðsludegi samkvæmt greiðsluáætlun fellur krafan úr heimabanka og greiðsluáætlun ógildist.