Fréttir og tilkynningar


Nýtt fyrirkomulag – greiðsluseðlar bifreiðagjalda eingöngu birtir rafrænt

6.7.2018

Frá og með 1. júlí verða greiðsluseðlar fyrir bifreiðagjöld einstaklinga eingöngu birtir á rafrænu formi. Með þessu má spara 65 milljónir króna árlega og 5 tonn af pappír.

Ár hvert hafa verið sendir út um 480 þúsund greiðsluseðlar vegna bifreiðagjalda. Bifreiðaeigendur geta nú nálgast seðlana í pósthólfinu á www.island.is. og samhliða stofnast krafa í netbanka.

Greiðsluseðlar til lögaðila, sem taka á móti rafrænum reikningum, verða sendir út rafrænt á XML formi í gegnum skeytamiðlara. Jafnframt birtist reikningur lögaðila í pósthólfinu á www.island.is og sem krafa í netbanka. Þeir lögaðilar sem ekki taka á móti rafrænum reikningum fá undanþágu við næsta gjalddaga og fá senda prentaða reikninga.

Óski bifreiðaeigendur sérstaklega eftir að fá senda útprentaða greiðsluseðla er hægt að hafa samband við Þjónustuver Tollstjóra í síma 560-0300 eða senda póst á netfangið fyrirspurn@tollur.is.

Álagning bifreiðagjalds fer fram 1. janúar og 1. júlí og er eindagi bifreiðagjalda 15. febrúar og 15. ágúst ár hvert.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum