Nýtt greiðslufyrirkomulag tilkynningar- og skráningargjalda til Fyrirtækjaskrár
Frá og með mánudeginum 14. september verður breyting á greiðslufyrirkomulagi skráningar- og tilkynningargjalda til Fyrirtækjaskrár.
Skráningarferli verður eftirleiðis svona:
- Tilkynning send á fyrirtaekjaskra@skatturinn.is
- Á eyðublaði er tilgreind kennitala þess sem mun greiða kröfuna
- Krafa stofnuð í heimabanka
- Þegar krafa er greidd fara tilkynningar í afgreiðsluferli
Greiðsluseðill mun vera aðgengilegur inn á Ísland.is sem og greiðslukvittun þegar krafa hefur verið greidd.
Hætt verður að taka við millifærslum samkvæmt gamla verklaginu.
Fagaðilar og aðrir sem senda sérútbúnar tilkynningar í tölvupósti skulu óska eftir því í sama pósti á hvaða kennitölu krafa skuli send.
