Ölgerðin hlýtur vottun sem viðurkenndur rekstraraðili (AEO)
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur nýverið hlotið viðurkenninguna viðurkenndur rekstraraðili (AEO) hjá íslenskum tollayfirvöldum. AEO-vottunin er staðfesting á að fyrirtækið sé öruggur hlekkur í aðfangakeðjunni og nýtur þar af leiðandi viðurkenningar íslenskra og erlendra tollayfirvalda.
Með AEO-vottuninni skuldbindur fyrirtækið sig til að uppfylla alþjóðlegar öryggiskröfur og reglufylgni. Á móti hlýtur fyrirtækið viðurkenningu sem traustur og ábyrgur rekstraraðili í alþjóðlegum vöruflutningum.