Opnað fyrir framtalsskil einstaklinga 28. febrúar
Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins frá og með 28. febrúar. Öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2024 ber að skila skattframtali og telja fram. Lokaskiladagur er 14. mars.
Ef þú hefur spurningar eða lendir í vandræðum með framtalið má velja ólíkar þjónustuleiðir:
- Spjallmennið Askur getur svarað ýmsum spurningum um framtalið
- Boðið verður upp á framtalsaðstoð í síma
- Senda fyrirspurnir á netfangið framtal@skatturinn.is
Leiðbeiningar
Framtalsleiðbeiningar 2025 er tilbúnar og komnar á vefinn ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að við skil á skattframtali.
Auðkenning á vef
Notast þarf við rafræn skilríki eða veflykil til auðkenningar inn á þjónustuvefinn við innskráningu.
Hvernig fæ ég rafræn skilríki?
Rafræn skilríki fyrir ungmenni yngri en 18 ára
Hvar má nálgast týndan veflykil?