Fréttir og tilkynningar


Opnað fyrir umsóknir um lokunarstyrk 4

17.2.2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um lokunarstyrk 4 sem vegna stöðvunar á starfsemi í tengslum við sóttvarnaraðgerðir á tímabilinu 18. nóvember til og með 31. desember 2020.

Lokunarstyrkur 4 er ákvarðaður er á grundvelli laga nr. 38/2020 eins og þeim var breytt með lögum nr. 119/2020.

Umsókn þessi er einnig fyrir þá rekstraraðila með starfsemi sem var gert að hafa lokað lengur. Umsóknir vegna lokana frá og með 1. janúar 2021 verða kynntar síðar.

Sótt er um á þjónustuvef Skattsins. Ef umsækjandi um lokunarstyrk er félag (lögaðili) skráir prókúruhafi sig inn á sína þjónustusíðu og fer þannig inn á svæði félagsins. Sjálfstætt starfandi einstaklingur fer inn í umsóknina í gegnum sína eigin þjónustusíðu. Leiðbeiningar við umsókn hafa verið birtar á COVID-19 síðum Skattsins en umsóknin er alveg sambærileg við umsókn um lokunarstyrk 3.

Nánari upplýsinga og leiðbeiningar með umsókn


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum