Opnunartími í mars
Skilafrestur á skattframtali einstaklinga 2019 er til 12. mars n.k. Af því tilefni verða breytingar á opnunartíma ríkisskattstjóra.
Dagana 1. til 20. mars 2019 verða opnunartímar sem hér segir:
Afgreiðslur RSK verða opnar frá kl. 9:00 til 15:30 alla virka daga en auk þess verða afgreiðslurnar á Laugavegi og Akureyri opnar til kl. 18:00 dagana 11., 12. og 15. mars
Framtalsaðstoð RSK verður opin frá 9:00 til 15:30 alla virka daga og til kl. 18:00 dagana 11., 12. og 15. mars 2019 í síma 442 1414.
Skil á framtölum fara fram á þjónustuvef ríkisskattstjóra.