Fréttir og tilkynningar


Pappírsskýrslur eingöngu á SAD formi

13.1.2020

Athygli er vakin á að frá 1. janúar 2020 er eingöngu tekið við pappírstollskýrslum á SAD formi (E2) nema í þeim tilfellum þar sem verið er að leiðrétta tollskýrslu sem upprunalega var gerð með gamla eyðublaðinu (E1).

Við skil á tollskýrslu á pappír skal nota E2 eyðublöðin sem hægt er að sækja á þessari síðu. Þar er einnig hægt að nálgast leiðbeiningar um útfyllingu SAD tollskýrslunnar.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum