Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán - Umsóknir sem berast fyrir 1. desember gilda afturvirkt frá janúar 2026
Ný lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána tóku gildi þann 1. október sl., en samkvæmt þeim er áfram heimilt að nýta séreignarsparnað til að borga mánaðarlega inn á húsnæðislán í allt að 10 ár.
Umsóknir sem berast fyrir 1. desember gilda afturvirkt frá janúar 2026
Ef sótt er um:
- Fyrir 1. desember 2026
Séreignarsparnaður sem greiddur hefur verið frá janúar 2026 greiddur inn á lánið (upp að leyfilegu hámarki ársins). - 1. desember 2026 eða síðar
Umsókn gildir frá og með umsóknarmánuði.
Athugið að í gildi er sambærilegt úrræði fyrir kaup á fyrstu íbúð en um það gilda aðrar reglur. Ef þú ert með virka umsókn í úrræðinu fyrir fyrstu kaup þarf ekki að sækja um aftur.
Opna umsókn um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán
Skilyrði
Til þess að geta nýtt séreignarsparnað til greiðslu inn á húsnæðislán þarft þú að:
- eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu
- vera með lögheimili í húsnæðinu
- vera með lán sem er tryggt með veði í húsnæðinu
Umsókn
Sótt er um á þjónustuvef Skattsins. Velja þarf hvaða séreignarsjóð og hvaða lán á að greiða inn á.
Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort fyrir sig.
Gildistími og afgreiðsla:
- Umsóknir gilda um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst.
- Það getur tekið 1–3 mánuði áður en fyrsta greiðsla berst inn á lánið
- Úrræðið gildir að hámarki í 10 ár (eða ígildi 120 mánaða).
- Undantekning á þessu er að umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 munu gilda fyrir mánaðarlegar greiðslur allt árið (frá 1. janúar 2026).
