Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán

1.7.2026

Lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána voru samþykkt á Alþingi nýlega. Lögin kveða á um að áfram verði heimilt að nýta séreignarsparnað til að borga inn á húsnæðislán.

Nýtt umsóknarferli í vinnslu

Unnið er að gerð nýs umsóknarferlis sem verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins. Stefnt er að því að umsóknarferlið verði tilbúið þegar lögin taka gildi 1. október næstkomandi.

Nánari upplýsingar um framkvæmd úrræðisins, umsóknarferlið og tímasetningar verða birtar á vef Skattsins eftir því sem undirbúningi vindur fram.

Mikilvægar dagsetningar

  • 1. október – Lögin taka gildi, stefnt er að því að hægt verði að taka á móti nýjum umsóknum.

  • 1. desember  Ef umsækjandi vill nýta séreignarsparnað sem greiddur hefur verið í séreignarsjóð frá janúar 2026 verður umsókn að berast fyrir 1. desember 2026.
  • Umsóknir sem berast eftir 1. desember 2026 gilda frá og með umsóknarmánuði.

Áfram hægt að sækja um vegna fyrstu íbúðar

Þau sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð geta áfram sótt um útborgun uppsafnaðs séreignarsparnaðar og ráðstöfun séreignarsparnaðar í gegnum þjónustuvef Skattsins

Nánari upplýsingar um úrræðið „Fyrsta íbúð“


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum