Kílómetragjald - Rangt skráningarnúmer ökutækis í stafrænu pósthólfi á Ísland.is

31.8.2026

Komið hefur í ljós ritvilla í fyrirsögn reikninga vegna kílómetragjalds sem birtir voru í stafrænu pósthólfi á Ísland.is um helgina.

Villan kemur fram hjá afmörkuðum hópi gjaldenda og snýr einungis að fyrirsögn reikninga í pósthólfinu. Reikningur Skattsins vegna kílómetragjaldsins er réttur og á honum kemur fram rétt skráningarnúmer ökutækis og rétt fjárhæð.

Ekki þarf að bregðast við enda villan aðeins í fyrirsögninni, innheimtunni er beint að réttum aðila og einungis vegna hans eigin ökutækja.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi ritvilla kann að hafa valdið.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum