Fréttir og tilkynningar


Ríkisskattstjóri er fyrirmyndarstofnun ársins 2017

11.5.2017

Könnun á ríkisstofnun ársins er nú gerð í tólfta sinn og varð ríkisskattstjóri í 2. sæti, af 86 stofnunum, í flokki stofnana með fleiri en 50 starfsmenn. Í fyrsta sæti varð Reykjalundur.

Er þetta tíunda árið í röð er ríkisskattstjóri fyrirmyndarstofnun ársins í árlegri könnun SFR en efstu stofnanirnar eru fyrirmyndarstofnanir.

Fyrirmyndarstofnun-2017

Ríkisskattstjóri hefur tekið þátt í þessari könnun frá upphafi og hefur embættið síðastliðin 10 ár verið í einum af fimm efstu sætunum í sínum flokki:

2017 - 2. sæti
2016 - 1. sæti
2015 - 1. sæti
2014 - 2. sæti
2013 - 4. sæti
2012 - 3. sæti
2011 - 2. sæti
2010 - 5. sæti
2009 - 2. sæti
2008 - 1. sæti
2007 - 56. sæti
2006 - 45. sæti

 Nánari upplýsingar um könnunina má nálgast á vef SFR


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum