Fréttir og tilkynningar


Ríkisskattstjóri lætur af störfum

30.4.2018

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri hefur verið kjörinn ríkisendurskoðandi og lætur hann því af störfum sem ríkisskattstjóri 1. maí 2018, eftir ríflega 11 ár í starfi.

Skúli Eggert ÞórðarsonIngvar J. RögnvaldssonSkúli Eggert hefur gegnt embætti ríkisskattstjóra frá 1. janúar 2007 og á að baki 37 ára farsælan starfsferil innan skattkerfisins. Var hann skattrannsóknarstjóri frá árinu 1993 og til ársloka 2006, og þar áður vararíkisskattstjóri á árunum 1990-1993. Á þeim tíma sem Skúli Eggert hefur leitt starfsemi ríkisskattstjóra hefur stofnunin tekið miklum breytingum, ekki hvað síst með sameiningu embættisins við hinar níu áður sjálfstæðu skattstofur landsins árið 2010. 

Við brotthvarf Skúla Eggerts tekur Ingvar J. Rögnvaldsson við sem settur ríkisskattstjóri en Ingvar hefur verið vararíkisskattstjóri frá 1. ágúst 2000. 

Starfsmenn ríkisskattstjóra óska Skúla Eggert velfarnaðar á nýjum vettvangi með innilegu þakklæti fyrir samstarfið á undanförnum árum.

 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum