Fréttir og tilkynningar


Rúmlega 4500 ólöglegum netsíðum lokað

1.12.2016

Rúmlega 4500 vefsíðum sem seldu falsaðan varning var lokað í alþjóðlegri aðgerð undir heitinu In Our Sites (IOS) VII. sem lauk nýverið.

Íslenska tollgæslan tók þátt í aðgerðinni sem gerð var á vegum Europol, Interpol auk bandarískra yfirvalda og naut hún liðsinnis embættis ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol við verkefnið. Ekki kom til þess að slíkum vefsíðum væri lokað hér á landi.

Aðgerðin náði til 27 landa. Á hinum ólöglegu vefsíðum voru meðal annars seldir falsaða varahluti, íþróttavörur, raftæki, skartgripir og merkjavara, lyf og hreinlætisvörur. Markmið þessa átaks var sem fyrr að stöðva ólöglega verslun og auka öryggi netverslunar fyrir neytendur.

Nánar í frétt á vef Europol


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum