Tvenn Nýsköpunarverðlaun til Skattsins
Skatturinn hlaut tvær viðurkenningar á Nýsköpunarverðlaunum hins opinbera fyrir árið 2025 sem veitt voru í vikunni.
Annars vegar hlaut Skatturinn verðlaun fyrir nýtingu gagna og tækninýjunga til að efla þjónustu stofnunarinnar við almenning.
Þá hlaut Benedikt Geir Jóhannesson, deildarstjóri gagnavísindaeiningar Skattsins, viðurkenningu fyrir öflugt einstaklingsframtak við hagnýtingu gervigreindar í umbótaverkefnum og framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun.
Verðlaunin eru veitt af Fjársýslunni í þeim tilgangi að varpa ljósi á öflugt umbótastarf og nýsköpun sem eykur gæði og skilvirkni í opinberri þjónustu.
Verðlaunin sýna fjölbreytileika nýsköpunar í opinbera geiranum, allt frá tækniinnleiðingu og gagnadrifinni stefnumótun yfir í notendamiðaðar lausnir og þróun þjónustu við almenning. Hver verðlaunahafi setur fordæmi fyrir hvernig frumkvæði og fagmennska geta umbreytt opinberri þjónustu til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
Allir gátu tekið þátt í að tilnefna til verðlaunanna en dómnefnd valdi verðlaunahafa. Tilnefna mátti einstakling í opinberri starfsemi, ráðuneyti/ríkisstofnun, sveitarfélag/stofnun sveitarfélags eða opinbert hlutafélag.
Nánar um Nýsköpunarverðlaun hins opinbera
Hanna Sóley Egilsdóttir, gagnavísindamaður, veitir verðlaunum móttöku fyrir hönd Skattsins
Elín Alma Arthursdóttir, vararíkisskattstjóri, veitir verðlaunum móttöku fyrir hönd Benedikts, sem ekki átti heimangengt