Skatturinn hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2020
Skatturinn er meðal þeirra fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana sem hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2020, sem Félag kvenna í atvinnulífinu veitir.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og var veitt viðurkenning til 30 fyrirtækja, 5 sveitarfélaga og 9 opinberra aðila úr hópi þeirra sem hafa undirritað viljayfirlýsingu og tóku þátt í könnun um aðgerðir sem gripið var til. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið.
Stór hluti þeirra þátttakenda
sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2019 hafa náð
góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hafa náð
markmiðunum um rúmlega helming á milli ára.
Hjá Skattinum er unnið eftir jafnréttisstefnu sem sett hefur verið og hefur embættið nýlega hlotið jafnlaunavottun. Konur eru um 53% starfsmanna Skattsins og í framkvæmdastjórn sitja 11 manns, þar af fimm konur.