Skatturinn hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar þriðja árið í röð
Á ráðstefnu Félags kvenna í atvinnulífinu, Jafnrétti er ákvörðun, var Skattinum veitt viðurkenning Jafnvægisvogarinnar við hátíðlega athöfn. Viðurkenningin er veitt þeim sem hafa jafnt kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar.
Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til 76 fyrirtækja, sveitarfélaga
og opinberra stofnanna úr hópi þeirra 209 þátttakenda sem hafa undirritað
viljayfirlýsingu. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta
stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið.
Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim þátttakendum sem hafa náð markmiðunum um 23 á milli ára.
Þetta er í þriðja sinn sem Skatturinn hlýtur þessa viðurkenningu, en í framkvæmdastjórn Skattsins sitja 11 manns, þar af fimm karlar.