Fréttir og tilkynningar


Spurningakönnun vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

24.3.2022

Opnað hefur verið fyrir árlega spurningakönnun ríkisskattstjóra vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Þurfa aðilar sem hafa fengið tilkynningu um könnunina að skrá sig inn á þjónustusíðuna með rafrænum skilríkjum eða veflykli og birtist könnunin þá undir Vefskil -> Peningaþvætti. Þeir sem eru á lista yfir tilkynningarskylda aðila ættu við innskráningu að fá upp kassa á forsíðu sinni þar sem hægt er að opna könnunina.

Algengar spurningar tilkynningarskyldra aðila 

Könnunin er liður í eftirliti embættisins og hvetur embættið alla tilkynningarskylda aðila til að svara henni innan gefins frests. Að öðrum kosti eiga þeir á hættu að vera metnir áhættumeiri og kann það að leiða til aukins eftirlits. Könnunin ætti ekki að taka nema nokkrar mínútur.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum