Staðgreiðsluprósenta 2021
Um áramót verða gerðar breytingar á staðgreiðslu, persónuafslætti og skattþrepum fyrir tekjuárið 2021.
Skatthlutfall einstaklinga í staðgreiðslu 2021
Af tekjum 0 – 349.018 kr. | 31,45% | |
Af tekjum 349.019 - 979.847 kr. | 37,95% | |
Af tekjum yfir 979.847 kr. | 46,25% | |
Skatthlutfall barna (fædd 2006 eða síðar) af tekjum umfram 180.000 kr. á ári. | 6% | |
Persónuafsláttur á mánuði | kr. | 50.792 |
Persónuafsláttur á ári | kr. | 609.509 |
Breytingarnar eru tíundaðar í tilkynningu Stjórnarráðsins frá 22. desember 2020.
Lesa tilkynningu Stjórnarráðsins í heild
Upplýsingar á vef Skattsins verða uppfærðar til samræmis á næstu dögum.