Fréttir og tilkynningar


Stórtækur sígarettusmyglari

25.8.2017

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar haldlögðu fyrr í þessum mánuði 78 karton af sígarettum sem karlmaður á þrítugsaldri var með í farangri sínum. 

Maðurinn var að koma frá Kaunas í Litháen þegar hann var stöðvaður við hefðbundið eftirlit. Sé miðað við meðalútsöluverð á sígarettum í dag nemur verðmæti smyglvarningsins nærri einni milljón króna.

Fimm flugfarþegar til viðbótar hafa orðið uppvísir að því að reyna að smygla tóbaki inn í landið á undanförnum vikum en ekki í nándar nærri eins miklum mæli og fyrrgreindi einstaklingurinn.

Minnt er á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra. Í hann má koma á framfæri ábendingum um smygl.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum