Fréttir og tilkynningar


Tekinn með kannabisfræ í bakpokanum

16.9.2016

Tollverðir stöðvuðu nýverið karlmann, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem reyndist vera með tuttugu kannabisfræ í fórum sínum. 

Maðurinn var að koma frá Amsterdam. Fræjunum hafði hann komið fyrir í bakpoka sínum.

Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins og er hún á lokastigi.

Því má bæta við að það sem af er þessu ári hafa tollverðir haldlagt 328 kannabisfræ í 26 póstsendingum sem borist hafa hingað til lands.

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum