Fréttir og tilkynningar


Tekinn með mikið magn stera og lyfja

8.4.2015

Mikið magn stera og lyfseðilsskyldra lyfja fannst í fórum íslensks karlmanns nýverið þegar tollverðir stöðvuðu hann við hefðbundið eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Maðurinn, sem er rétt um sjötugt, var að sögn að koma frá Tælandi með millilendingu í Osló. Í ferðatösku hans fundust rúmlega 3500 ambúlur af sterum í vökvaformi auk talsverðs magns af sterum í töfluformi. Einnig var hann með vel á annað þúsund skammta af lyfseðilsskyldum lyfjum.

Tollstjóri kærði málið til lögreglunnar á Suðurnesjum sem fer með rannsókn þess.

Umræddur einstaklingur hefur komið við sögu áður vegna svipaðra mála.

Búið var um sterana og lyfin í ferðatösku.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum