Fréttir og tilkynningar


Tollverðir stöðvuðu óhreinan reiðfatnað

10.2.2015

Tollverðir stöðvuðu, á árinu 2014, fjórar sendingar sem höfðu að geyma notaðan og óhreinan reiðfatnað og annan varning tengdan hestamennsku. 

Um var að ræða reiðskó, reiðhjálm, leðurreiðstígvél, tamningamúl og notaða hestaábreiðu. Sendingarnar voru stöðvaðar í tollpósti, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á Seyðisfirði. Tollstjóri undirstrikar mikilvægi þess að ferðamenn fari í einu og öllu að gildandi lögum nr.25. 7. apríl 1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim til að vernda dýrastofna hér á landi gegn alvarlegum smitsjúkdómum.

Einnig er bent á vef Matvælastofnunar, þar sem er að finna greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar varðandi þessi mál á íslensku og einnig á ensku.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum