Fréttir og tilkynningar


Tölulegar upplýsingar um álagningu einstaklinga 2020

29.5.2020

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2020, á tekjur ársins 2019. Tekjuskattur og útsvar hafa að mestu þegar verið innheimt í staðgreiðslu en í álagningunni fer fram endanlegt uppgjör þessara skatta.

Þar að auki er lagt á útvarpsgjald, gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa og tryggingagjald, sem lagt er á einstaklinga með rekstur í eigin nafni. Við álagningu eru einnig ákvarðaðar barna- og vaxtabætur, auk sérstaks barnabótaauka á árinu 2020.

Hinn 29. maí nk. verða inneignir samkvæmt niðurstöðum álagningar lagðar inn á bankareikninga þeirra gjaldenda sem eiga inni hjá ríkissjóði.

Fjöldi framteljenda og áætlaðir aðilar

Framteljendur á skattgrunnskrá hafa aldrei verið fleiri, en á grunnskrá voru nú 313.337 einstaklingar, 5.639 fleiri en fyrir ári sem er fjölgun um 1,8%. Þetta er mun minni fjölgun en undanfarin ár, en framteljendum fjölgaði um 10.024 í álagningu í fyrra. Skattar 19.840 einstaklinga voru áætlaðir en það er um 6,33% af heildarfjölda. Undanfarin ár hafa skattskil farið batnandi en áætluðum fækkaði nú um 347 á milli ára.

Rafræn framtalsgerð

Ríkisskattstjóri hefur í gegnum tíðina leitast við að bæta þjónustu við framteljendur. Nú er orðið mun auðveldara fyrir flesta að telja fram til skatts þar sem framtöl eru að mestu leyti unnin rafrænt og samskipti við framteljendur fara að miklu leyti fram á netinu. Betri skil gagna og aðstoð við framteljendur hafa fækkað villum og einfaldað framtalsgerðina fyrir all flesta. Hefðbundin pappírsframtöl heyra sögunni til en nú skiluðu 99,38% framteljenda rafrænu skattframtali.

Framlagning álagningarskrár og kærufrestur

Með vísan til ákvæðis til bráðabirgða LXVI með lögum nr. 37/2020 verður álagningarskrá einstaklinga ekki lögð fram á árinu 2020. Framlagning skattskrár í janúar 2021, vegna álagningar á tekjur einstaklinga á árinu 2019, verður auglýst síðar.

Kærufrestur vegna álagningarinnar rennur út þann 31. ágúst nk.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum